opıfa

Iðnaðarmenn sem svara

Lýstu verkinu einu sinni. Skráð fyrirtæki í þinni grein og á þínu svæði senda þér tilboð og þú velur það sem hentar.

Væntanlegt áApp Store Væntanlegt áGoogle Play

Appið er í lokafrágangi. Sendu okkur línu ef þú vilt fá að vita þegar það kemur út.

Svona virkar þetta

Aðeins þrjú stutt skref.

  1. 1

    Lýstu verkinu

    Veldu iðngrein, skrifaðu stutta lýsingu og settu inn myndir. Það tekur örfáar mínútur.

  2. 2

    Fáðu tilboð

    Fyrirtæki í réttri grein og á réttu svæði fá tilkynningu og senda þér verð og hvenær þau geta byrjað.

  3. 3

    Veldu og hafðu samband

    Berðu saman verð og umsagnir, spjallaðu við fyrirtækið í appinu og samþykktu tilboðið sem hentar.

Af hverju Opifa

Ókeypis fyrir húseigendur

Opifa kostar þig ekkert. Þú borgar iðnaðarmanninum beint fyrir verkið og Opifa tekur enga þóknun af því verði.

Aðeins skráð fyrirtæki

Við förum handvirkt yfir hverja umsókn og skoðum kennitölu og gögn um réttindi áður en fyrirtæki fær aðgang.

Þú sérð verðið fyrst

Tilboðin koma til þín með verði, hvenær hægt er að byrja og umsögnum fyrri viðskiptavina. Engin skuldbinding fylgir því að fá tilboð.

Allt á einum stað

Myndir, skilaboð, tilboð og umsagnir eru í appinu, svo þú þarft ekki að leita í gömlum símtölum að því hvað var umsamið.

Ert þú iðnaðarmaður?

Þú borgar ekkert fyrir fyrirspurnir, aðeins fyrir verk sem þú vinnur. Verkin koma til þín í þinni grein og á þínu svæði.