Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á opifa@opifa.is.
Húseigendur
Hvað kostar Opifa fyrir mig?
Ekkert. Opifa er ókeypis fyrir húseigendur. Þú borgar iðnaðarmanninum beint fyrir verkið og við tökum enga þóknun af því verði.
Er ég skuldbundinn þegar ég set inn verk?
Nei. Þú getur fengið tilboð og hafnað þeim öllum, eða hætt við verkið á meðan það er opið. Það kostar ekkert og hefur engar afleiðingar.
Hverjir fá að senda mér tilboð?
Aðeins fyrirtæki sem hafa sótt um aðgang og verið yfirfarin handvirkt. Við skoðum kennitölu og gögn um réttindi eða löggildingu áður en aðgangur er opnaður. Fyrirtækið sér aðeins verk í þeim greinum og á þeim svæðum sem það er skráð fyrir.
Sjá allir heimilisfangið mitt?
Nei. Á meðan verkið er opið sjá fyrirtækin aðeins póstnúmer og landshluta, ásamt fornafni þínu. Heimilisfangið og símanúmerið opnast eingöngu því fyrirtæki sem þú samþykkir tilboð frá.
Hvað ef eitthvað fer úrskeiðis?
Þú getur sent okkur kvörtun og við skoðum málið. Við getum fjarlægt umsagnir sem standast ekki, áminnt fyrirtæki eða lokað aðgangi þess. Af því að greiðslan fer ekki í gegnum Opifa getum við hins vegar ekki haldið fé eftir eða endurgreitt þér. Ágreiningur um greiðslu er milli þín og fyrirtækisins.
Hvenær má ég skrifa umsögn?
Þegar verkið hefur verið merkt lokið, og í nokkra daga eftir það. Aðeins sá sem fékk verkið unnið getur skrifað umsögn um það.
Iðnaðarmenn
Hvað kostar Opifa fyrir fyrirtækið?
Þú borgar ekkert fyrir fyrirspurnir, aðeins fyrir verk sem þú vinnur. Nánari verðskrá fylgir þegar við höfum samband eftir umsókn.
Hvernig sæki ég um?
Fylltu út formið á síðunni fyrir iðnaðarmenn eða skráðu þig inn í gegnum appið. Við höfum samband innan 48 klukkustunda og leiðum þig í gegnum umsóknina í appinu, þar sem þú gefur upp kennitölu fyrirtækis, iðngreinar, þjónustusvæði og gögn um réttindi.
Hvað tekur langan tíma að komast inn?
Við förum yfir umsóknir handvirkt og svörum innan 48 klukkustunda. Þú færð tölvupóst um leið og aðgangurinn hefur verið samþykktur.
Get ég breytt tilboði eftir að ég sendi það?
Já, á meðan húseigandinn hefur ekki tekið afstöðu. Þú getur breytt verði, hvenær þú getur byrjað og skilaboðunum, eða dregið tilboðið til baka og sent nýtt síðar.
Má ég taka verkið fram hjá Opifa?
Greiðslan fyrir verkið fer hvort eð er beint milli þín og húseigandans, við komum hvergi nálægt henni. Það sem þú greiðir Opifa er fyrir aðganginn að verkunum.
Hverjir sjá kennitöluna mína?
Aðeins starfsmenn Opifa. Kennitölur og skjöl um réttindi eru geymd á lokuðum stað og birtast hvergi á prófíl fyrirtækisins.