Fyrir húseigendur
Þú þarft ekki að hringja í sex fyrirtæki og bíða eftir að einhver svari. Lýstu verkinu einu sinni og láttu tilboðin koma til þín.
Appið er í lokafrágangi. Sendu okkur línu ef þú vilt fá að vita þegar það kemur út.
Hvað kostar Opifa?
Opifa kostar þig ekkert
Þú borgar iðnaðarmanninum beint fyrir verkið og Opifa tekur enga þóknun af því verði. Það kostar ekkert að setja inn verk og ekkert að fá tilboð.
Hvernig verkið gengur fyrir sig
- 1
Settu inn verkið
Grein, lýsing, myndir, hverfi og hvenær þér hentar. Ef það liggur á merkirðu verkið áríðandi og fyrirtækin fá sérstaka tilkynningu.
- 2
Tilboðin berast
Þú sérð verð, hvenær hægt er að byrja, einkunn fyrirtækisins og umsagnir fyrri viðskiptavina. Þú getur spurt í spjallinu áður en þú ákveður þig.
- 3
Þú velur
Þegar þú samþykkir tilboð opnast tengiliðaupplýsingar beggja aðila. Hinum tilboðunum er hafnað sjálfkrafa.
- 4
Verklok og umsögn
Þú merkir verkið lokið og gefur fyrirtækinu einkunn. Umsögnin hjálpar þeim næsta að velja.
Gott að vita
- Engin skuldbinding fylgir því að setja inn verk eða fá tilboð.
- Aðeins fyrirtæki sem hafa verið yfirfarin handvirkt geta sent þér tilboð.
- Heimilisfangið þitt sést ekki fyrr en þú hefur samþykkt tilboð. Þangað til sjá fyrirtækin aðeins póstnúmer og hverfi.
- Greiðslan fer beint milli þín og iðnaðarmannsins. Opifa kemur hvergi nálægt henni og veitir því enga greiðslutryggingu.
- Þú getur hætt við verk á meðan það er opið, og sagt upp aðgangi hvenær sem er.
Viltu byrja?
Appið er í lokafrágangi og kemur í App Store og Google Play á næstunni.