opıfa

Um okkur

Opifa varð til af einfaldri ástæðu: það er allt of erfitt að ná í iðnaðarmann.

Flestir kannast við þetta. Þú þarft pípara, hringir í fjögur fyrirtæki, tvö svara ekki, eitt er upptekið fram í næsta mánuð og það fjórða gefur verð í síma sem reynist annað þegar reikningurinn kemur. Á hinum endanum eru iðnaðarmenn sem eyða kvöldinu í að svara fyrirspurnum sem leiða ekki til neins.

Opifa snýr þessu við. Húseigandinn lýsir verkinu einu sinni og fyrirtæki sem hafa áhuga, getu og réttindi senda tilboð. Enginn eltir neinn.

Hvað við trúum á

  • Verð á að liggja fyrir áður en verkið byrjar. Tilboð með tölu, ekki „við sjáum til“.
  • Traust er unnið, ekki keypt. Við förum handvirkt yfir hverja umsókn og umsagnir koma aðeins frá fólki sem hefur raunverulega fengið verk unnið.
  • Peningarnir eiga að fara beint til þess sem vinnur verkið. Við tökum enga þóknun af verðinu og komum hvergi nálægt greiðslunni.
  • Iðnaðarmaðurinn á ekki að borga fyrir fyrirspurnir. Aðeins fyrir verk sem hann vinnur.

Nafnið

Opifa er dregið af latneska orðinu opifex, sem er sett saman úr opus, verk, og facio, að gera. Handverksmaður, með öðrum orðum.

Hvar við erum stödd

Appið er í lokafrágangi og fer í App Store og Google Play á næstunni. Við byrjum á höfuðborgarsvæðinu en appið er opið um allt land, og við bætum við iðngreinum eftir því sem fleiri fyrirtæki skrá sig.

Spurningar?

Við svörum öllum pósti.