opıfa

Persónuverndarstefna

Uppfært 21. október 2026

Ábyrgðaraðili

Opifa, opifa@opifa.is.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Allir notendur appsins

Nafn, netfang, símanúmer og tæknilegt auðkenni fyrir push-tilkynningar ef þú leyfir þær.

Húseigendur

Verkin sem þú setur inn, þar á meðal lýsing, myndir, heimilisfang, póstnúmer og landshluti, tilboð sem þú færð, skilaboð og umsagnir sem þú skrifar.

Fyrirtæki

Nafn fyrirtækis, kennitala, rekstrarform, lýsing, merki, forsíðumynd, myndir af fyrri verkum, þjónustusvæði, iðngreinar, skjöl um löggildingu eða réttindi, tilboð, skilaboð og greiðslustaða.

Fyrirspurnir af þessum vef

Ef þú fyllir út fyrirspurnarform fyrir iðnaðarmenn hér á vefnum söfnum við nafni fyrirtækis, iðngrein, nafni tengiliðar, símanúmeri, netfangi og athugasemd. Við notum þessar upplýsingar eingöngu til að hafa samband við þig um Opifa og eyðum þeim ef ekkert verður úr samstarfi. Við biðjum ekki um kennitölu á vefnum.

Við söfnum ekki staðsetningu úr símanum, notum engar auglýsingamælingar og engar vafrakökur til að fylgjast með þér á þessum vef.

Til hvers

Til að reka markaðstorgið: sýna fyrirtækjum verk í þeirra grein og svæði, koma tilboðum og skilaboðum á milli aðila, senda tilkynningar, fara yfir umsóknir fyrirtækja, innheimta gjöld af fyrirtækjum og bregðast við kvörtunum. Lagagrundvöllur er samningur við þig (skilmálar Opifa) og lögmætir hagsmunir okkar af að reka örugga þjónustu.

Hver sér hvað

  • Fyrirtæki í réttri grein og svæði sjá verk húseiganda: titil, lýsingu, myndir, póstnúmer og landshluta, og fornafn húseiganda. Heimilisfang og símanúmer húseiganda sjást aðeins því fyrirtæki sem húseigandi hefur samþykkt tilboð frá.
  • Húseigandi sér opinberar upplýsingar fyrirtækja sem senda tilboð, og tengilið fyrirtækisins eftir samþykki.
  • Kennitölur og löggildingarskjöl fyrirtækja sjá aðeins starfsmenn Opifa.
  • Umsagnir eru opinberar innan appsins með fornafni þess sem skrifar.

Vinnsluaðilar

Gögn eru hýst hjá Supabase í gagnaveri innan EES (Írlandi). Push-tilkynningar fara gegnum Expo og tölvupóstur gegnum Resend. Þessi vefur er hýstur hjá Cloudflare. Við seljum ekki persónuupplýsingar.

Varðveisla

Gögn eru geymd meðan aðgangurinn er virkur. Þegar þú eyðir aðgangi í stillingum appsins er gögnum þínum eytt varanlega, þar með töldum myndum og skjölum. Bókhaldsgögn um gjöld fyrirtækja eru geymd í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum, og innihalda nafn fyrirtækis, kennitölu og fjárhæðir.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að gögnum þínum, leiðréttingu, eyðingu og að fá gögnin afhent. Skrifaðu á opifa@opifa.is. Þú getur kvartað til Persónuverndar.

Börn

Opifa er ætlað einstaklingum 18 ára og eldri.

Breytingar

Við tilkynnum breytingar í appinu. Dagsetning síðustu breytingar er efst á þessari síðu.